Aðalvalmynd

tjékkið á þessu.. ætli þetta sé satt?

http://www.crushcalculator.com/content/love/815663792

Auglýsing

Bloggarar

Litlir Grallarar

Teljari

Nýjast á B2.is

Klukkan

Innskráningar kubbur

Leikur dagsins

Könnun

hvort haldiði að verði strákur eða stelpa hjá mér?

Atburðarteljari

Gagnasafn

bloggibloggMaren Rannveig Birgirsdóttir

jæja þetta er bara
orðið venjulegt að ég bloggi með svona löngu millibili:)

En það er allt gott að frétta að okkur. Jóhanna Mjöll orðin eins árs og alger pæja. María er nátturulega alger skvísa alltaf..:) Það er rosalega gaman að fylgjast með því hvað Jóhanna er alltaf að nálgast systir sína hratt í þroska.. það er svo stutt á mili þeirra að þær verða örugglega eins og tvíburar á endanum.
ohh ég get ekki beðið eftir því að þær verði svona 10-13 ára gamlar, erum öruggleg eftir að ná mjög vel saman við gellurnar..:) ég er svo ung í anda sko!SaklausSvalur

En já eins og flestir vita nú þá er ég komin með aukavinnu. Herbalife dreyfingaraðilli. !

held að þetta sé besta ákvörðun sem ég hef tekið  í lífinu.! Mér hefur aldrei liðið jafn vel andlega og líkamlega, og ekki er það nú slæmt að fá allann þennann pening í vasann:)  ég er búin að missa 10 kíló síðan ég átti jóhönnu mjöll, og nú er stefnan tekin á bootcamp..  ætla sko að verða heavy flott gella:) hehe

Já við erum  nú ekki búin að vera eikkvað rosalega dugleg að ferðast.. því jón ívar er nú ekki mikið heima svosem. en jújú erum búin að fara til Akureyrar á bíladaga og svo á akranes. Erum sem sagt búin að vera að fylgja Halla besta vini jóns ívars í útilegur, því hann sér um paintball og hann ferðast með það með sér um landið á allskonar hátíðsdaga og jón ívar er að vinna í paintballinu með honum, meðan við konurnar grillum og hugsum um börnin:) 
Svo er ættarmót hjá okkur núna 18 júlí... því miður þá er víst mjög léleg mæting á það.. :/
Mér langar svo ógeðslega að fara.. en jón ívar er búin að keyra tvisvar austur í vikunni fyrir ættarmótið og hann nennir valla að keyra þangað í 3 skiptið þó það sé utan vinnutíma. þannig að það verður ekkert úr því hjá okkur.:/

Nú er maður í sumarfríi og hefur ekkert að gera alla vikuna. ég er alveg í vandræðum  með sjálfa mig þessa daganna. ég geng bara um gólf algerlega eirðarlaus. maður er alltaf búin að öllu, maður hefur svo mikin tíma. um hádegi þá er maður búin með þvottinn og búin að ryksuga og taka til. setja jóhönnu í vagnin  og maría er alltaf úti að leika sér.. hvað á maður þá að gera?? ég nenni ekki út að labba með báðar stepurnar. það er sko ekki að virka..! þyrfti að fá mér svona systkinapall á vagnin..! hmmmÓákveðinn
þannig að já... mig hlakkar til að byrja að vinna aftur:) get ekki verið svona aðgerðarlaus.!

Við jón ívar tókum svo að okkur 800-bar eina helgi um daginn.. það var rosa stuð. jón ívar á barnum og ég að týna glös og á barnum líka..:)  mjög skemmtileg vinna bara.. fínn aukapeningur líka. Það er líka geðveikt gaman að vera svona bak við barinn að fylgjast með öllu þessu fulla fólki sem kemur. Ullandi
ég hugsaði oft bara ó mæ. hvernig er ég eginlega þegar ég stend þarna hinumegin við með þessu fólki hehehe

Svo auðvitað ekki gleyma Líney Dönu frænku okkar sem er búin að vera hjá okkur núna í einhverjar vikur, hún er 15 ára og alger skutla. jésús minn hvað það er búið að vera frábært að hafa hana hjá mér. hún er mjög dugleg að taka til og passa stelpurnar og svona.!:)

Jæja..  ég skelli inn hérna nokkrum myndum að gellunum í leiðinni:)

Jóhanna Mjöll


krútt

knús


...

haldiði nokkuð að það sé komin tími á blogg eða??:)Maren Rannveig Birgirsdóttir

hehe.  maður segist alltaf ætla að vera rosa dugleg að blogga.. og svo gerist ekkert.!Saklaus

allavega þá er bara allt rosa gott að frétta af okkur. Ég er auðvitað byrjuð að vinna núna. er að vinna sem stuðningsfulltrúi í sunnulækjarskóla. mér finnst það roslega skemmtilegt starf. ég held ég sé alveg hönnuð í það að vinna og vera með börnum:) en þetta er bara 50% vinna. s.s frá 1 til 5 alla virka daga.

Svo er ég orðin Herbalife Dreyfingaraðilli. Svalur mér finnst það mjög gaman líka.. þetta er æðisleg vara:)

Nú er Jóhanna Mjöll að verða eins árs eftir nokkra daga. 26 maí:) vááá hvað þetta er sjúklega fljótt að líða.  við  erum að tala um það að hún er alveg að fara að labba núna. það er sko ekki langt þangað til að við gellurnar 3 förum saman að versla í sautján:)  hehe þetta er svooo fljótt að líða. Jóhanna Mjöll e´r í pössunn hjá henni ólínu meðan ég er að vinna. Ólína er æðisleg kona. ég  auglýsti sem sagt eftir ''ömmu'' í dagskránni. því það var enga dagmömmu að fá. (enda ógisslega dýrt að fara með til dagmömmu) og Já Ólína hringir í mig og langar að passa fyrir mig. ég fer og heimsæki hana og hún ert hreinlega æðisleg. Jóhanna er búin að vera hjá henni núna í 3 mánuði og hún elskar ólínu.. stekkur í fangið á henni í hvert skipti sem við komum. enda dekruð hjá henni.. hehe. mér finnst ég vera roslega heppinn með hana:)

María er alltaf jafn klár og falleg lítil stelpa. fórum á foreldrafund um daginn og þær áttu bara ekki til orð yfir því hvað hún væri dugleg, kurteis og klár :) þær sögðu að það var greinilega eitthvað sem heppnaðist hjá mér í uppeldinu hehehe:) váá hvað ég var ánægð með að heyra það:) og þær sögðu líka að hún væri alltaf brosandi og jákvæð..!:) það gengur alveg svaka vel með gleraugun. hún vill allavega alltaf vera með þau. svo er svo fyndið með hana að þegar hún fer að sofa á kvöldin þá gengur hún voða fallega frá þeim alltaf á sama stað:) 
 
Svo sagði María um daginn  ''mamma, þú ert sko BESTI vinur minn''  og kyssti mig svo og knúsaðiSvalur

Jæja nú hlýtur að vera komið sumar. það er sllavega komin þvílíkur sumarfílingur í mig. ég er búin að vera að deyja mig hefur langað svo mikið að fara í sumarbústað og útilegur.. ég er eftir að verða óstöðvandi í sumar heheh:)

jæja þá er allaveg komið smá blogg. veit ekki hvað ég egt sagt ykkur meira..:)  set smá myndir með hérne fyrir neðan..

Gleðilegt sumar allir..SvalurUllandimæjapæja


baðstelpan


sæta

alltaf með tunguna úti þessa daganna:)

...Maren Rannveig Birgirsdóttir

hehe ég sem ætlði að reyna að vera dugleg að blogga...Ullandi

já það er sko margt og mikið að gerast hjá okkur þessa dagana.

Mamma og pabbi eru flutt á stokkseyri og mér líst bara svakalega vel á það allt. rosalega kósí og heimilsilegt og notalegt hús.. allavega eikkað annað enn þetta HUGES hús sem þau voru í..:) sem var jú alveg æðislegt líka:) og já það gengur allt bara rosa vel hjá þeim. Alfreð og ingi sveinn byrjuðu eftir áramót í skólanum á stokkseyri og líkar þeim held ég bara rosa vel. Jú alfreð byrjaði nátturulega með stæl og puttabraut sig þegar þeir voru í frímínotum í skólanum hehe greyið strákurinn!

Við erum komin á svaka flottann bíl. Audi jeppa. GJEGGJAÐUR bíll! og auðvitað settum við einkanúmerið á hann (JHONNY). og jú það er alveg horft á mann á þessum bíl hehe, halda allir að ég sé moldrík. en neinei ætlum ekkert að eiga hann mikið lengi. en ég er ekki viss um að mér finnist einhver annar bíll góður núna eftir að ég er búin að eiga þennan audi. hehe

svo vorum við að opna bónstöð.Hlæjandi   hún heitir Bónstöð Selfoss. og það gengur allt rosa vel. vorum með opnunar partý þar um daginn og létum Trukkinn (þóri má) skreppa til þorlákshafnar og fylla pallinn á Harley Davidson trukknum okkar af klökum. hann fór bara í humarvinsluna eða eikkað solleis. svo fórum við og keyptum nokkra kassa að bjór og tvo kassa af litlum snakk pokum. svo bökkuðum við harley davidson trukknum inná bónstöð og settum alla bjórana oní klakann á pallinum :) þetta var rosa kúl. svo vorum við með báða audi jeppana inni (Gussa bíl líka sem sagt) alveg stífbónaða og nýju fjórhjólin líka og bmw inn... ógeðslega flottir:)
það kom fullt að fólki og það var mikið drukkið og fíflast:)
þessi fjórhjól eru snilld. gussi og jón ívar keyptu sér eins alveg glæný gul Can- am hjól. ég fer sko reglulega út að leika mér heheh:)

Jóhanna mjöll er orðin svaka stór og dugleg stlepa. enda orðin 8 mánaða..! geðveikt fljótt að líðaKoss
hún er komin með 6 tennur:) og allt gengur alveg æðislega vel. hún er farin að skríða aðeins og sona.. segir mamma og papa:) maría friðmey elskar hana útaf lífinu og er rosa góð við hana:) en jú jú allir eiga sína slæmu daga hehehe :) systur slást það er mjög eðlilegt!! hehe
úff hvernig ætli þetta verði þegar þær fara að rífast um föt og fleira.. djíssses!


Jóhanna Mjöll

jóhanna mjöll



María Friðmey er komin með gleraugu. við fórum með hana til barnaaugnlæknis og það kom í ljós að hún væri fjarsýn og með latt auga. latt auga er auga sem rennur oft til hliðar þegar hún er til dæmis mjög þreytt og solleis. og ef það verður ekki lagað nógu fljótt þá getur hún orðið rangeygð í framtíðinni. en hún er alveg svakalega dugleg með gleraugun. og ekkert mál að hafa þau bara á nefinu, hún fiktar ekkert í þeim og greinilega sér beturGlottandi María friðmey varð 3 ára núna 12 Janúar síðastliðinn og var það mikið stuð. héldum uppá afmælið hennar,  og að sjálfsögðu bjó mamma til sollu stirðu köku.:)

Fyrsta myndin sem var tekin af Maríu með nýju gleraugun:)
María Friðmey

Jæja ég ætti að fara að huga að því að pakka niður. því við erum að fara til Florida eftir 6 daga.. sem sagt 4 febrúar:) ég get ekki beðið sko. eru að fara að heimsækja Sigrúni.Einar, Borghhildi og Erlu Rós. vá verður þetta gaman:) ég ætla sko að MISSA mig í að versla ..:) við förum bara tvö og það verður örugglega mjög rómó:) hehe

endilega kvittið og kommentið krúsíbollurnar mínarGlottandi fyrst ég var nú loksins að blogga fyrir ykkur heheSaklaus

---out---

Hej..!Maren Rannveig Birgirsdóttir

já ég var að pæla í að blogga smá fyrir ykkurSvalur

Það eru bara búnir að vera góðir tímar hjá mér síðustu vikur:) vorum til dæmis að koma frá köben:) það bvar alger snilld. fórum með vinnunni hans jóns ívars, Jötunn vélum. og vorum yfir helgina. skoðuðum fyrirtækin sem jötunn vélar eiga þar og svo var farið í HM (hvaða annað!) á laugardeginum og djammað um kvöldið... jaa við skulum frekar segja haldið áfram að djamma.! það var sko ekkert stoppað síðan ið lentum í köben og bara þangað til við fórum:) en það var bara gaman.:) þið sem eruð  að pæla í því hvernig ég fór að því að fara frá litlu kellingunni minni sem er bara 5 mánaða þá var það EKKI auðvelt! en ég sé alls ekki eftir því að hafa farið. ég var heilan mánuð að pumpa brjóstamjólk til að frysta fyrir hana á meðaneg væri í  burtu og gekk það alltsaman rosa vel. hún var víst alveg rosa þæg og góð hjá ömmu sinni. ég tók svo bara pumpuna með mér til DK og pumpaði mig á hverjum degi til að missa ekki  mjólkina því ég vile kki hætta með hana strax á brjósti. hún stökk á brjóstið um leið og ég kom heim. ohh það var svvvoooo notalegt:) hún var sko ekki búin að gleyma brjóstinu þó hún hafi bara fengið pela í 4 daga:)

*allavega þá er komin ein tönn.. bara krúttlegt og gaman að því. Hlæjandi

*sandra búin að eiga lítinn prins og allt gekk rosa vel. hann er orðin þriggja vikna og þau loksins komin heim. til hamingju!Brosandi

*Katrín vinkona eignaðist stelpu sama dag og alt gekkk vel hjá henni líka. til hamingju með þaðBrosandi

*mamma og pabbi búin að selja og kaupa nýtt hús á stokkseyri..!já þið lásuð rétt!! stokkseyri:)Brosandi

Já svo verður sko tekið á því núna fyrir jólinn! haldiði að kjellingin hafi ekki farið í dag í Toppsport og keypt sér kort og fengið prógramm hjá einkaþjálfara :) úff mér er búið að hlakka svo lengi til að fara í ræktina! það verðru yndislegt:)

jæja.. skellti nokkrum myndum inná barnaland.! endilega kíkið og kvittið:)


 

já það er sko að koma vetur:)Maren Rannveig Birgirsdóttir

það er búið að vera klikkað rok í dag og það var klikkkuð rigning í gær..:) ég er samt fegin því að það var ekki þetta rok og þessi rigning sama daginn, úf það hefði verið þessi líka þvílíki stormur þá..! en það er ekkert smá kósý að sitja bara inní við kertaljós og baka og sona eins og við guðný og mamma gerðum í dag:)

annars er allt gott að frétta:) ætla bara að henda smá bloggi hérna inn svo það sé nú eikkað líf á þessu bloggi mínu:) það gengur allt rosavel með  jóhönnu Mjöll hún er ann bara á brjósti og stækkar mikið og vel.. María var nú englabarn en váá ég þarf ekki einu sinni að rugga Jóhönnu hún er svvoooo stillt:) bara leika drekka og sofa:) getur ekki verið betra.. svo er maría nátturulega á leikskólanum og það er bara alveg frábært hvað henni finnst það gaman. hún er vöknuð sjálf kl 7 á morgnana  og er afar hamingjusöm að klæða sig fyrir leikskólann:)

Jóhanna Mjöll fór svo til Hjatrasérfræðings í gær af því að það heyrðist eitthvað aukahljóð í hjartanu á henni í 3 mánaðaskoðuninni og það var allt skoðað og það var allt í góðu lagi:) sem betur fer! nema það fannst smá gat  sem sagt opið á milli gátta eins og það er sagt á læknamáli. en það er mjög algengt og alveg hættulaust þannig að þetta á bara að lokast með aldrinum:) en hún var vigtuð í 3 mánaða skoðuninni og hún er orðin 6550gr:) æðislegt:)

hmmm já svo fékk ég mér Permanent í hárið.. bara flott:) búin að langa að gera það lengi:)

Rreyni svo að blogga fljótlega aftur:)

Brosskvísan:)
brosskvís

djöfull er ég nú dugleg að blogga.. finnst ykkur ekki!??:)Maren Rannveig Birgirsdóttir

... það er svosem heldur ekkert skrítið því að talvan mín er ónýt...Gráta

Málið er að ég er svo ógesslega dugleg að taka til og þrífa heima hjá mér (ekki kaldhæðni!!!) að þegar ég vara að skúra heima um daginn þá rak ég mig svona líka fallega i tölvuna að hún datt í gólfið og skjárinn fór í trilljón bita.!Tala af sér en við fáum okkur líklegast nýja tölvu í byrjun næstu viku:)

Allavega ég stalst í tölvuna hjá gumma bróðir til þess að fræða ykkur aðeins um lífið hjá þessa síðustu daga. Jóhanna mjöll er orðin stór (samt lítil) bolla.. hún er rosalega dugleg að drekka og er enn bara á brjósti og vona að það haldi sona vel áfram bara... hún hjalar mikið og er farinn að leika sér aðeins af dótinu i kringum sig rosa dugleg:) María er byrjuð á leikskólanum núna.. það er bara ekkert mál hjá henni.. ekkert feiminn og borðar alveg rosa vel.. það var einmitt ´það sem é var að vonast eftir að hún skildi byrja að borða MAT.. eikkvað sem hún hefur lítið gert. en þegar hún sér hina krakkana gera það þá borðar hún líka sem betur fer:) Ullandi 

þannig að þessa daganna er vakna ég kl 7 og geri stelpurnar tilbúnar og fer svo með maríu á leikskólann útaf því að ég vil fara með hana fyrstu vikuna og svo tekur jón ívar við á mánudaginn  næsta. vá verður það notalegt og já er bara búi' að vera notalegt síðan hún byrjaði.. bara ein heima með jóhönnu rosa kósí. veit samt aldrei hvað ég á að gera því það er alltaf svo fínt heima hjá mér að ég get ekkert tekið til.. nema jú kannski setja í vélinnaKoss æj það er líka bara mjög notalegt:) hehe 

en já um versló þá vorum við bara heima.. nema laugardagsnóttina þá gistum við hjá mömmu og pabba í hjólhýsinu í miðengi það var stuð. en svo var bara voða kósí að sitja heima með vidjó og popp..!:)
svo síðustu helgi þá skruppum við til akureyrar því systir mín var að halda brúðkaupsveislu. hún v ar að gifta sig:) þau giftu sig í Orlando um daginnKoss og það var rosa skemmtileg og flot veisla í fjallakofa rétt hjá höllinni hans jóhannesar í bónus:) aðeins flottara hús sko! úff
já við vorum svo sniðug að fara á vinnubílnum hans jóns ívar norður og kipptum bara nokkrum vélum með til að skila á sveitabæi.. þannig að við vorum  á launum alla helgina:) hehe þessi bíll er bara 3 manna (sona nýr Dodge RAM) þannig að maría fór með mömmu og pabba norður og fékk svo að vera hjá tengdó því þau voru á fiskidögum í Dalvík. við kiktum á þau þar og váá´var mikið af fólki.. en já þetta er bara búin að vera snilldar daga uppá síðkastið og veðrir alevg frábært:)

svo er líka fullt annað að frétta nenni bara ekki að skrifa meir..

*gussi og kristin eignuðust stelpu. til hamingju

*Anna María og Gunnþór eignuðust stelpu til hamingju með það..

*eyja og halli að fara að eignast barn ( og fleiri, má ekki segja hehe)Ullandi

*sandra missti vatnið komin 24 vikur.. vona að allt gangi voða vel sandra mín sendi strauma!!

*Sóley og Vilhelm eru komin heim frá danmörku..!

*ingi sveinn var að kaupa sér Nýtt fjórhjól

og fleira og fleira..:)

en nóg í bili.. ætla að dæla myndum inná disk svo ég geti bráðum farið að setja inná barnland eikkað.. er búin að læsa síðunni þannig að endilega sendið mér email um lykilorðið eða hérna er msn ið mitt svo þið getið spurt  anastaciakelly msn.com (kann ekki að gera at merki á þessu lyklaborði)hehe:)


tjá

...Maren Rannveig Birgirsdóttir

-----Ætli maður verði ekki að blogga solítið..:)----

Jóhanna mjöll er orðin 5 vikna gömul og er orðin alger bolla:) hún er víst stærri enn einn lítill drengur sem fæddist viku á undan henni.. hehe hún verður öruggleg stærri enn systir sín á endanum.. enda held ég að það verði örugglega ekki eins erfitt að fóðra þessa ungu dömu eins og maríu. ótrúlegt hvað maría er matvönd.. enda alveg eins og mæja amma. hún er orðin rosalega lík mömmu. mamma var víst líka sona erfið með mat þegar hún var lítil. en við erum ekki enþá alveg búin að átta okkur á jóhönnu.. hverjum hún er lík.! hún er alger kokteill:) mér finnst alveg æðislegt hvað hún er dugleg að halda haus og hún hjalar alveg á fullu. þetta er svo fljótt að líða.. !

María er rosalega afbrýðsöm. það er rosa erfitt hjá okkur stundum..! :/ jón ívar er að vinna svo mikið að hann er aldrei heima þegar við erum vakandi. annaðhvort kemur hann heim kl 3 og 4 á nóttunni og fer snemma eða kemur bara ekkert heim. hann gistir stundum einhverstaðar útá landi þegar hann er seint á ferðinni. það gerist sona 2 í viku. þið sem vitið ekki þá er hann að vinna við að keyra búvélar útum allt land. þannig að hann getur ekki mikið hjálpað mér.. er alltyaf ein með stelpurnar. en það er líka búið að vera rosa kósý hjá okkur þessa dagann af því að það er búið að vera svo gott veður. maður er bara búin að vera úti að labba og í sólbaði alla þessa góðu daga. alveg æði.. sem betur fer fékk ég loksins systkinasæti lánað hjá þóru, það er búið að bjarga mér mikið.

já svo er reunion hjá mér 14 júlí.. get ekki beðið skoh! að hitta öllu gömlu skólafélagana. ætla að versla mér föt og gera mig flotta fyrir það. fer í litun og svo í plokkun og brúnku.. úff langt síðan ég hef farið í solleis dekur:)  verð sko alger skvísa:)

jæja verð að fara að sinna litlu.. einhver sogþörf í gangi..:)  ble ble

búin:)Maren Rannveig Birgirsdóttir

Jæja það kom að því að ég eignaðist barnið.. hehe fór viku framyfir settann dag:)

það kom Litil stelpa sem var 14 merkur og 51 cm. :) hún er alveg æði. og það sást alveg strax að ég átti meira í þessu barni en jón ívar. það er nú líka alveg sanngjarnt vegna þess að hún maría var gersamlega snýtt útur nösunum á pabbi sínum.. alveg nákvæmlega eins og pabbi sinn! en jú sú litla fékk allavega eyrnasnepplana mína (greyið barnið) :) og margt fleira.. hún verður allavega örugglega mjög falleg eins og hún er..! pg eins og systir sín:)

en vá hvað það er samt skrítið að eiga tvö börn núna..! hehe ég er tveggja barna móðir:) alger snilld. það gengur allt mjög vel. þrastariminn er tilbúin.. jón ívar vaknaði kl 6 um morguninn, daginn sem hann sótti mig uppá fæðingardeild. til þess að gera allt klárt áður en við mæðgurnar kæmum heim!:) rosa sætt af honum:) íbúðin er orðin alveg gjeggjað flott.:)


                                              Jóhanna Mjöll

Heitir prinsessan. ákváðum að skíra 2 júní af því að aðrir dagar næstu 2 mánuðina næstum voru ekki í boði vegna utanlandsferða hjá fjölskyldum. hehe ótrúlegt en satt. svo að við drifum bara í þessu og það heppnaðist sona snilldar vel líka.. það voru um 40 manns í veislunni sem við héldum í nýja lookinu á íbúðinni okkar. og allir voru alveg þvílikt hissa og ánægðir með breytinguna. Jóhanna systir jóns ívar var líka mjög ánægð með nanfnið. en það er soldið fyndið að nú á ég mæju og jóu..:) sona eins og mamma og jóhanna systir hennar:) bara eitt ár á milli þeirra. þannig að þetta er eins:) við erum mjög ánægð með þetta nafn.:)

jæja.. ætli ég verði ekki að fara að láta barnið sjúga.. er alveg að springa. mjólka sko alveg eins og belja:) hehe

set myndir inná
www.mariafridmey.barnaland.is 

hæjjMaren Rannveig Birgirsdóttir

vildi bara láta vita að ég er ekki enn búin að eiga..!! er gengin 3 daga framyfirSvalur 
þetta hlýtur að fara að koma:) nú er barnið allaveg í stjörnumerki mömmu sinnar. hehe tvíburi.:) það veit hvað það vill greinilega..

annars er allt að verða tilbúið heima.. erum bara eftir að klára baðherbergið.. annras flytjum við bara inn á morgun held égHlæjandi held að jón ívar ætli bara að dunda sér við baðherbergið í fæðingarorlofinu..! jæja.. ég læt ykkur vita þegar eikkað gerist eða bara þegar eikkað er KOMIÐ:) hehe

kv.bumbulína

vúhúúMaren Rannveig Birgirsdóttir

                              Í DAG Á ÉG AÐ EIGA..!Svalur


En þá er spurning hvort það verði nokkuð...Öskrandi 
allavega engir verkir enþá nema í rófubeininu..! áts Fýldur ekki gott að setjast niður og standa upp. en við skulum vona að þetta komi bara sem fyrst. nenni nú engan veginn að fara að ganga framyfir sko...


kv. bumbulína
 

Síða 1 af 3